Hundahreinsun í þéttbýli Borgarbyggðar

nóvember 30, 2007
Lögbundin hundahreinsun í þéttbýli verður á tveimur stöðum í
Borgarbyggð í byrjun desember. Hvað varðar dreifbýlið, þá fara dýralæknar um og hreinsa á bæjum. Það verður sérstaklega auglýst þegar komið verður að Bifröst. Þeir sem ekki mæta til hundahreinsunar á tilgreindum stöðum eru beðnir um að skila vottorði inn á skrifstofu ráðhúss Borgarbyggðar um að hundar þeirra hafi verið hreinsaðir annars staðar.
Staðir:
Slökkvistöðin við Sólbakka í Borgarnesi, þriðjudaginn 4. desember kl. 17 – 19.
-Skemman (áhaldahús LBHÍ) við Kollubar á Hvanneyri, mánudaginn 10. desember kl. 18 – 20.
Samkvæmt hollustuháttarreglugerð nr. 941/2002, 15. kafla, er hundaeigendum skylt að láta ormahreinsa hundana árlega. Skylt er að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri og nýgotnar tíkur og 3-4 vikna hvolpar skulu spóluormahreinsaðir sérstaklega.
Öllum hundaeigendum í þéttbýli Borgarbyggðar býðst að nota sér þessa þjónustu og mega koma á hvorn staðinn sem er. Kostnaður við hundahreinsun er innifalinn í hundaleyfisgjöldum og því þurfa þeir sem að þegar hafa skráð hunda sína og greitt hundaleyfisgjald fyrir árið 2007 ekki að greiða sérstaklega fyrir hreinsunina. Aðrir þurfa að greiða fyrir þjónustu dýralæknis. Og eins ef óskað er eftir fleiru en bara ormahreinsuninni. Athugið að greiða þarf með peningum.
Allir hundaeigendur eru velkomnir. Skráningareyðublöð verða á staðnum fyrir þá sem vilja skrá hunda sína í leiðinni.
Upplýsingar um samþykktir um hundahald er að finna á vef Borgarbyggðar. Sjá hér.
Nánari upplýsingar veitir umhverfis- og kynningarfulltrúi Borgarbyggðar í síma 433 7100 eða gegnum netfangið bjorg@borgarbyggd.is
 
Á næsta ári verður farið að vinna eftir nýrri hunda- og kattasamþykkt en þangað til gilda samþykktir fyrir Borgarnes og Borgarfjarðarsveit.
 

Share: