Íbúðar- og hesthúsalóð í Húsafelli III, óveruleg breyting á deiliskipulagi

viktor1

Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 12. mars 2026 eftirfarandi tillögu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 43. gr. sömu laga, óverulega breytingu á deiliskipulagi íbúðar- og hesthúsalóðar í Húsafelli III.

Mál nr. 357/2026 í skipulagsgátt

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.


Borgarbyggð, 13. apríl 2026