Stóri plokkdagurinn og upphaf mannræktarviku

apríl 24, 2026
Featured image for “Stóri plokkdagurinn og upphaf mannræktarviku”

Stóri plokkdagurinn fer fram næsta sunnudag og eru íbúar hvattir til að taka þátt og plokka í sínu nærumhverfi. Sama dag hefst einnig Mannræktarvika í Borgarbyggð, sem stendur frá 26. apríl til 3. maí. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu og hvetja okkur til að sýna hvert öðru hlýju í daglegu lífi.

Félagar í Rotary taka á móti þátttakendum í Hjálmakletti í Borgarnesi kl. 10:00 þar sem hægt verður að nálgast glæra poka fyrir plokkið. Einnig er hægt að mæta í Skallagrímsgarð kl. 11:00, en að sjálfsögðu geta allir hafið plokkun hvar sem er í sveitarfélaginu.

Klukkan 13:00 verður svo grillað í Skallagrímsgarði og boðið upp á pylsur, Ungmennaráð verður á staðnum og stendur fyrir skemmtilegum leikjum- öll eru velkomin að koma og njóta.


Share: