DANS, DANS, DANS og aftur DANS…

nóvember 26, 2007
Nú um helgina voru þeir krakkar frá grunnskóla Borgarfjarðar sem stunda dansíþróttina af kappi, í æfingabúðum að Hlöðum í Hvalfjarðarsveit. Lagt var af stað seinnipart föstudags og voru dansæfingar, glens og gaman fram á kvöld. Morguninn eftir hófust dansæfingar snemma og æft var fram yfir hádegi af fullum krafti því auglýst hafði verið danssýning kl. 15:00. Húsfyllir var á sýningunni sem tókst í alla staði vel.
Eva Karen Þórðardóttir sem hefur haft veg og vanda af þessu dansstarfi undanfarin ár á hól skilið fyrir frábært starf í þágu barna og unglinga á skólasvæði grunnskóla Borgarfjarðar (Andakíls- og Kleppjárnsreykjaskóla).
Meðfylgjandi myndir tók Elisabeth Jansen á danssýningunni á laugardag.
 
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir.
 
 

Share: