Brekkukot – Nýtt deiliskipulag

viktor1

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að nýju deiliskipulagi í Brekkukoti í Borgarbyggð.

Brekkukot

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10.03.2026 að auglýsa lýsingu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð (ÍB14) í Brekkukoti í Borgarbyggð.

Deiliskipulagssvæðið er 20 ha að stærð og deilir landamerkjum með lóð Fells og jörðum Hurðarbaks, Deildartungu og Grófar. Fyrirhugað er að útbúa 6 lóðir fyrir íbúðarhús til viðbótar við eitt íbúðarhús sem fyrir er nú þegar á Brekkuhvammi (L178781). Aðkoma yrði um núverandi veg að Brekkuhvammi frá Borgarfjarðarbraut. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037.

· Skipulagslýsing er aðgengileg í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar
(www.skipulagsgatt.is mál nr. 291/2026) frá 13.03.26 til og með 30.03.26 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma.
Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 13. mars, 2026.