Jólakort frá Bifröst

nóvember 20, 2012
Tilkynning frá Útskriftarfélaginu á Bifröst:
Útskriftarfélagið á Bifröst hefur gefið út jólakort til styrktar nemendum sem útskrifast næstkomandi haust. Það sem einkennir þessi jólakort eru ekki bara fjórar afskaplega fallegar myndir frá Bifröst að vetri til, sem Ágúst G. Atlason myndaði, heldur fóru nemendur út fyrir kassan og breyttu þeir þeim hefðbundna texta sem hefur verið í jólakortum hingað til. Fengu útskriftarnemar leyfi frá Guðbjörgu og Ingibjörgu Bergsveinsdætrum til að notast við ljóð móður þeirra, Guðrúnar Jóhannsdóttur (1892-1970) frá Brautarholti.
En Guðrún ólst upp á bænum Sveinatungu í Borgarfirði og eru liðin 120 ár frá fæðingu hennar á þessu ári. Ljóðið er afskaplega fallegt og er fólk almennt mjög spennt að breyta til með þessu ljóði. Ljóðið má lesa hér:
Hamingjan gefi þér gleðileg jól,
gleðji og verndi þig miðvetrarsól,
brosi þér himininn heiður og blár
og hlýlegt þér verði hið komandi ár.
Þeir sem vilja nálgast svona jólakort eru beðnir um að panta kort með því að senda póst á utskrift@bifrost.is eða hringja á háskólaskrifstofuna á Bifröst í síma 433-3000.

Share: