Óskað er eftir starfsmanni við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal

nóvember 19, 2007
Leikskólakennari eða starfsmaður með uppeldismenntun og/eða reynslu af stöfum með börnum óskast til starfa við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal í Borgarfirði frá og með 1. janúar 2008. Í boði er tæplega 100% staða eða tvær hlutastöður.
Leikskólinn Hnoðraból er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 15-20 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 4-5 starfsmenn.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi áhuga á að starfa með börnum, færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði í starfi, jákvæðni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Upplýsingar um starfið veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir, leikskólastjóri, í síma 435-1157 eða á netfanginu hnodrabol@borgarfjordur.is.
 

Share: