Ljóðasýning af tilefni dags íslenskrar tungu

nóvember 16, 2007
Ljóðasýning nemenda fimmtu bekkja (og nærliggjandi bekkja í fámennari skólunum) á frumsömdum ljóðum þeirra og myndskreytingum verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar klukkan 16:30 föstudaginn 16. nóvember. Gert er ráð fyrir listamönnunum ungu í heimsókn, farið í leiki og boðið uppá veitingar. Þetta er í þriðja sinn sem sambærileg sýning er haldin á degi íslenskrar tungu.
Jafnframt verður þennan dag opnuð lítil sýning á verkum Halldóru B. Björnsson rithöfundar frá Grafardal en hún hefði orðið hundrað ára á þessu ári. Halldóra var í hópi átta systkina frá Grafardal sem öll ortu ljóð, og út hafa komið ljóðabækur eftir sex þeirra. Halldóra skrifaði einnig nýstárlegar smásögur en hvað þekktust er hún kannski fyrir þýðingu sína á Bjólfskviðu sem kom út að henni látinni 1983.
 
 

Share: