Þjónusturáð Vesturlands – auglýsing um styrki

október 29, 2012
Þjónusturáð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms-, verkfæra- og tækjakaupa á grundvelli 27. greinar í lögum um málefni fatlaðra. Umsækjendur skulu eiga lögheimili á Vesturlandi, búa við varanlega örorku og vera orðnir 18 ára.
Styrkir verða veittir til greiðslu menntunar eða námskeiðskostnaðar eða kaupa á verkfærum – áhöldum sem ætla má að auðveldi fötluðu fólki að skapa sér heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi í kjölfar endurhæfingar.
Umsóknir skulu berast til félagsþjónustu Borgarbyggðar fyrir 20. nóvember 2012.
 
 

Share: