STARF Á SKRIFSTOFU UMSB

október 6, 2015
Ungmennasamband Borgarfjarðar óskar eftir starfsmanni á skrifstofu sambandsins í fjölbreytt og spennandi starf á sviði tómstundamála í Borgarbyggð. Um er að ræða fullt starf.
 
Helstu verkefni eru skipulagning og yfirumsjón með íþrótta- og tómstundaskóla fyrir börn í 1.-4.bekk, sumarstarfi grunnskólabarna og starfsemi félagsmiðstöðva í Borgarbyggð ásamt öðrum verkefnum á sviði tómstunda- og íþróttamála.
 
Menntunar og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði uppeldis-, félags- eða tómstundamála er kostur.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Grunnþekking á tölvum í t.d. word og excel.
  • Þekking á íþrótta- og tómstundastarfi ungmenna er kostur.

 
Nánari upplýsingarum starfið og starfsemi UMSB gefur framkvæmdastjóri í síma: 869-7092 eða umsb@umsb.is
 
Umsóknarfrestur er til 19. október 2015 og skal skila umsóknum ásamt ferilskrá á netfangið umsb@umsb.is eða á skrifstofu UMSB á Skallagrímsgötu 7a, 310 Borgarnesi.
 
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað.
 
 

Share: