Frístundabyggð í Eskiholtsskógi – Nýtt deiliskipulag

thora

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 9. ágúst 2024 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í Eskiholtsskógi í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til 66,4 ha svæðis sem er að mestu innan frístundabyggðar F37 en að hluta á landbúnaðarlandi. Svæðið afmarkast af Gufuá að vestan, Laxholtsvegi að norðan, Galtarholtslæk að austan og Eskiholti 2 að sunnan. Fyrirhugaðar eru 43 frístundalóðir og 5 íbúðalóðir með tilheyrandi innviðum. Tryggt verður að byggð falli sem allra best að umhverfi og að röskun vistkerfa á svæðinu verði haldið í lágmarki. Gerð er óveruleg breyting á aðalskipulagi samhliða.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 829/2023) frá 16. október til og með 27. nóvember 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 16. október, 2024.