Borgarbyggð sendir út launaseðla í stafrænt pósthólf!

október 2, 2024
Featured image for “Borgarbyggð sendir út launaseðla í stafrænt pósthólf!”

Frá næstu mánaðamótum 1. nóvember 2024 verða launaseðlar eingöngu aðgengilegir í stafrænu pósthólfi á www.island.is. Launaseðlar munu því ekki birtast lengur í heimabankanum.
Starfsfólk er hvatt til að nýta sér stafrænar lausnir til að draga úr pappírsnotkun.

Til að nálgast launaseðil skráir viðkomandi sig inn á „mínar síður“ á www.island.is með rafrænum skilríkum eða auðkennisappi. Hægt er að fá tilkynningu með tölvupósti þegar launaseðill berst.


Share: