Ný deild opnar á leikskólanum Uglukletti

september 24, 2007
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að opnuð verði ný deild á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi frá og með 1. október næstkomandi. Ugluklettur tók til starfa síðastliðið haust. Á leikskólanum hafa verið frá því hann opnaði 44 börn á tveimur deildum.
Aðsókn að leikskólanum varð mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þessi breyting gerir skólanum kleyft að taka við 10 börnum til viðbóta fram að áramótum.
 
Mynd með frétt: Björg Gunnarsdóttir (Uglur á grein).

Share: