Útivistartími barna og unglinga

september 1, 2008
Vetrartími útivistar hjá börnum og unglingum tekur gildi í dag, 1. september. Samráðshópur um forvarnir hvetur foreldra til að fylgja settum reglum, en þær eru settar samkvæmt barnaverndarlögum. Þar segir í 92. grein ,,Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. …” Sjá hér auglýsingu frá samanhópnum og Ríkislögreglustjóra.
 

Share: