Auglýsing um svæðisskipulag Mýrasýslu

ágúst 30, 2010
Niðurfelling svæðisskipulags Mýrasýslu 1998-2010
Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Mýrasýslu hefur samþykkt að fella úr gildi svæðisskipulag Mýrasýslu 1998-2010 vegna nýs aðalskipulags Borgarbyggðar 2010 – 2022.
Niðurfellingartillagan verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 30. ágúst til 27. september 2010. Gögnin eru einnig aðgengileg hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og þau má nálgast hér
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir. Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eigi síðar en 11. október 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

F.h. Samvinnunefndarinnar;
Jökull Helgason
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
 

Share: