Laust starf í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi

ágúst 20, 2009
Almennur starfsmaður óskast í Íþróttamiðstöðina Borgarnesi ( karl )
Um er að ræða tímabundna ráðningu næstu 8 mánuði.
Þarf að geta hafið störf strax eða 1. sept. n.k.
Umsóknarfrestur er til fimmtudags 27. ágúst n.k.
Nánar:
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Starfið er vaktavinna sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmannvirki úti og inni, í íþróttahúsi auk þrifa, afgreiðslu o.fl.
Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilnings á íþrótta- og æskulýðsstarfi. Laun samkvæmt kjarasamningum launarnefndar sveitafélaga.
Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnipróf sundstaða.Vinnustaðurinn er reyklaus.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhúss Borgarbyggðar Borgarbraut 14.
Nánari upplýsingar gefur íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á skrifstofu sinni í Ráðhúsi eða í síma 433-7100.
Einnig er hægt að senda umsókn á netfangið indridi@borgarbyggd.is þar sem fram kemur nafn, kennitala, menntun, meðmælendur og fyrri störf umsækjanda.
 

Share: