Að gefnu tilefni er rétt að ítreka að ákvörðun um að lóga dýri er alltaf tekin að höfðu samráði við starfsmann Umhverfis-og skipulagssviðs Borgarbyggðar.  Hingað til hefur aldrei verið farið með merktan  og/eða skráðan heimiliskött til svæfingar til dýralæknis eftir handsömun í Borgarbyggð.  Kötturinn sem umræðan snýst um þessa dagana var hvorki merktur, örmerktur né á skrá hjá Borgarbyggð.
Samkvæmt lögum 22. grein laga  nr. 55/2013 um velferð dýra  er skylt að einstaklingsmerkja ketti.  Samkvæmt samþykktum Borgarbyggðar ber íbúum í þéttbýli í Borgarbyggð einnig að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu.  Hér með eru allir íbúar Borgarbyggðar hvattir til þess að láta merkja dýr sín og íbúar í þéttbýli einnig að skrá þau hjá sveitarfélaginu.