Leikskólinn Hnoðraból – skemmtilegt starf

júlí 6, 2015
Leikskólakennara vantar til starfa í leikskólann Hnoðraból, Grímsstöðum frá og með 6. ágúst n.k.,um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara.
Í leikskólanum dvelja að jafnaði 20 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 7starfsmenn.
Áhersluatriði í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, heilsuefling og umhverfismennt.
 

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð færni og jákvæðni í samskiptum

 

Aðrar upplýsingar um starfið:

  • Starfshlutfall er 100%
  • Starfið er laust frá 6. ágúst 2015.
  • Ráðning er tímabundin til eins árs.
  • Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara.
  • Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
  • Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið.

· Í samræmi lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila sakavottorði.
 
Vakin er athygli á að ef leikskólakennari sækir ekki um kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2015
 
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir, leikskólastjóri, í síma 435-1157 eða 862-0064, eða í tölvupósti; sjofn@borgarbyggd.is
 

Share: