Hvaða fólk er þetta?

júlí 4, 2008
Á heimasíðu Safnahúss Borgarfjarðar, www.safnahus.is er Skjalasafnið með fastan dálk þar sem leitað er eftir upplýsingum um gamlar myndir í eigu safnsins. Þessi mynd er ein þeirra og er spurt hvaða fólk sé á myndinni.
Einu upplýsingarnar sem fylgja myndinni eru að á bakhlið hennar stendur: „tekið við gamla hótelið“og að ljósmyndarinn er úr Vestmannaeyjum. Ekki er vitað hvaða hótel er átt viðog ekki nöfnin á fólkinu.
 
Sá sem hefur einhverjar upplýsingar um myndina má gjarnan hafa samband í síma 430 7206 eða á netfangið skjalasafn@safnahus.is.
 

Share: