Könnun á ferðavenjum á Vesturlandi

júní 11, 2012
Frá UMÍS-Environice:
Nú eru fyrirhugaðar breytingar á kerfi almenningssamgangna á Vesturlandi. Af því tilefni vinnur UMÍS ehf. Environice að könnun á viðhorfum íbúa til breyttra ferðavenja með tilkomu nýja kerfisins. Markmiðið er að kanna umhverfislegan ávinning af breyttum almenningssamgöngum m.t.t. þess hvort breytingarnar geti leitt til minnkunar á losun gróðurhúsalofttegunda. Meðfylgjandi spurningakönnun er send til íbúa á öllu Vesturlandi í þessum tilgangi. Könnunin er rafræn. Spurningalistinn er sendur með tölvupósti til úrtaks íbúa á Vesturlandi en einnig aðgengilegur á netinu, m.a. á heimasíðu SSV (www.ssv.is), UMÍS (www.umis.is) og sveitarfélaganna.
 
Athugið að aðeins er hægt að svara spurningakönnuninni einu sinni úr hverri tölvu.
Þess er vænst að sem flestir íbúar svæðisins sjái sér fært að taka þátt og svari könnuninni samkvæmt bestu vitund. Hægt er að svara henni að hluta og/eða sleppa einstaka spurningum.
Við alla framkvæmd könnunarinnar er farið að ákvæðum laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, og tryggt að ekki verði á nokkurn hátt unnt að rekja niðurstöður til einstakra þátttakanda.
Hlekkur á könnunina er hérhttp://kwiksurveys.com?s=MMIMML_684113e
 
Bestu þakkir og kveðja,
Hrafnhildur Tryggvadóttir
Náttúrufræðingur
UMÍS-Environice ehf

Share: