Sumarlestur byrjaður í Safnahúsi

júní 11, 2012
Í sumar er í fimmta sinn efnt til til sumarlesturs í Safnahúsi. Sumarlesturinn er fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og tímabilið er frá 10. júní – 10. ágúst. Markmiðið er að nemendur viðhaldi og þjálfi lestrarleiknina sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn. Verkefnið er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu. Í ágúst verður svo haldin uppskeruhátíð sumarlestursins, en þá koma krakkarnir í Safnahús til leiks og skemmtunar og þiggja viðurkenningar oghressingu.
Bókasafnið er opið alla virka daga frá 13.00-18.00 sýningar í Safnahúsi eru opnar frá 13.00-17.00 alla daga, einnig hátíðis- og helgidaga.
Á myndinni sem Guðrún Jónsdóttir tók, má sjá áhugasama krakka ræða sumarlesturinn við Sævar bókavörð.
 

Share: