Skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi

júní 9, 2015
Staða skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi er laus til umsóknar.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á árangur og vellíðan nemenda í góðu samstarfi við starfsmenn.
Grunnskólinn í Borgarnesi er skóli með um 300 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Starfsemi skólans skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda.
Gildi skólans eru sjálfstæði – ábyrgð – virðing og samhugur.
Frekari upplýsingar má sjá á heimasíðu skólans www.grunnborg.is
 
 
Starfssvið:
Skólastjóri ber faglega- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun og framgang faglegrar stefnu.
Menntunarkröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun eða reynsla af kennslu og stjórnun á grunnskólastigi
  • Menntun á sviði reksturs er æskileg.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
  • Reynsla af störfum á sviði stjórnunar og rekstrar er æskileg.
  • Vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Færni í starfsmannastjórnun.
  • Lipurð og færni í samskiptum.
  • Sveigjanleiki og víðsýni.
  • Vammleysi.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra..
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2015.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Nánari upplýsingar veita Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is og Sigurjón Þórðarson sigurjon@hagvangur.is ráðgjafar Hagvangs.
 

Share: