Skólaslit Grunnskóla Borgarness

júní 6, 2007
Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi eru í dag. Í því tilefni fóru nemendur og kennarar í skrúðgöngu niður á íþróttasvæði þar sem farið var í leiki og grillað ofaní mannskapinn í tilefni skólaloka. Kristján Gíslason skólastjóri sleit skólanum í ræðu sem hann flutti í blíðskaparveðri og síðan var farið í leiki á íþróttavellinum. 10. bekkur útskrifast seinna í dag við hátíðlega athöfn á Hótel Borgarnesi að venju.
 
Ljósmyndina tók Indriði Jósafatsson.
 

Share: