Opið hús og myndlistarsýning á Hnoðrabóli

maí 29, 2012
Á morgun, miðvikudaginn 30. maí bjóða börnin á Hnoðrabóli öllum velunnurum skólans á opið hús og myndlistarsýningu í leikskólanum frá kl. 14.00 til kl. 15.45.Þar verður til einnig sölu nýútkomin uppskriftabók Hnoðrabóls og rennur allur ágóði í ferðasjóð barnanna en bókin er samvinnuverkefni foreldra, barna og starfsfólks og kostar 1.000kr. Krakkarnir bjóða foreldra, systkini, ömmur, afa, frænkur, frændur og aðra sveitunga velkomna að koma og eiga góða stund saman á Hnoðrabóli og þiggja kafffiveitingar.
Bestu kveðjur frá öllu á Hnoðrabóli
 
 

Share: