Grunnskólinn í Borgarnesi – lausar stöður

maí 22, 2015
 
 
Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi
 
Við leitum að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015

  • Umsjónarkennurum á yngra stig
  • Tónmenntakennara
  • Heimilisfræðikennara
  • Sérkennara

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur.
  • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.
  • Góð kunnátta í íslensku skilyrði.

Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og hafa hugrekki til þess að feta nýjar leiðir.
Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 300 nemendur í 1.-10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar.
Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.
Umsóknarfrestur er til 8. júní.
Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skólastjóra, signy@grunnborg.is Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 698-9772.
 
 

Share: