Laus störf hjá Grunnskóla Borgarfjarðar

maí 15, 2012
Grunnskóli Borgarfjarðar óskar eftir áhugasömu fólki í eftirtalin störf:
Við Kleppjárnsreykjadeild vantar:
· Sérkennara
· Umsjónarkennara á unglingastigi
· Aðstoðarmatráð
· Skólaliða. Starfið felst í daglegum þrifum á skólahúsnæði, gæslu og fl.
Við Hvanneyrardeild vantar:
Starfsmann í „Skólasel“. Starfið felst í að skipuleggja viðveru og vinna með nemendum í Selinu eftir að skóla lýkur til kl 16.00.
Mikilvægt að umsækjendur hafi góða færni í mannlegum samskiptum og hafi gaman af því að vinna með börnum og ungmennum.
Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir í síma 430-1504/847-9262. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið:inga@gbf.is
 
 

Share: