Knattspyrnudeild Skallagríms í samstarfi við Borgarbyggð, mun á næstunni bjóða upp á nýjung í starfi sínu, verkefni sem kallast Fótbolti fyrir alla. Um er að ræða vikulegar knattspyrnuæfingar fyrir börn og unglinga með sérþarfir, einstaklinga sem af einhverjum ástæðum eiga erfitt með að stunda reglulegt íþrótta-og tómstundastarf. Æft verður í litlum hópum, æfingar eru einstaklingsmiðaðar og þátttakendur æfa fótbolta á eigin forsendum undir leiðsögn vel menntaðra og reyndra þjálfara.
Ekki verða innheimt hefðbundin æfingagjöld af þátttakendum heldur gefst kostur á að kaupa miðaspjöld á lágmarksverði þar sem miðar nýtast jafnt á sumar- sem vetraræfingar, líkt og deildin hefur gert með æfingar fyrir 8.flokk og hefur gefist afar vel.
Með þessu vill Knattspyrnudeild Skallagríms víkka út starfsemi sína og gera sem flestum í því fjölbreytta samfélagi sem hún starfar í , tækifæri til að kynnast þessari vinsælustu íþróttagrein heims.
Fyrsta æfing er laugardaginn 5. maí kl 12:00 í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi og Knattspyrnudeild Skallagríms tekur fagnandi nýjum knattspyrnuiðkendum.