Grunnskóli Borgarfjarðar – kennarar

apríl 14, 2014
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir kennurum til starfa næsta skólaár
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfstöðva grunnskóli með 220 nemendur. Starfstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri.
Tvo kennara vantar í fullar stöðu við Kleppjárnsreykjadeild skólans vegna afleysinga. Um er að ræða umsjónarkennara á unglingastigi. Æskilegar kennlugreinar eru: náttúrufræði, erlend tungumál og stærðfræði.
Einnig vantar kennara í hálfa stöðu í list -og verkgreinum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og LS. Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k.
Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur.
Mikilvægt er að umsækjendur hafi gaman af því að starfa með börnum og ungmennum og séu tilbúnir að vinna eftir stefnu og gildum skólans. Sjá heimasíðu www.gbf.is
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262/433-7302 netfang; inga@gbf.is
 
 

Share: