Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir sérkennara til starfa

apríl 3, 2013
Ertu menntaður sérkennari sem vantar starf á fallegum stað í Borgarfirði í góðum skóla? Ef svo er, þá er Varmaland staður fyrir þig.
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfstöðva grunnskóli með 220 nemendur. Starfstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri. Sérkennara vantar í Varmalandsdeild skólans.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KI og LS. Umsóknarfrestur er til 25.apríl nk.
Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu ásamt meðmælendum.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262/430-1504 netfang; inga@gbf.is
 

Share: