Styrkir vegna fasteignaskatts félaga og félagasamtaka – 2014

apríl 3, 2014
Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
 
Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2014. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2014 og skal öllum umsóknum skilað til fjármálafulltrúa.
Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is
 
 

Share: