Áhaldahús

Áhaldahús Borgharbyggðar sinnir margvíslegum verkefnum sem snúa að þjónustu við íbúa og stofnanir sveitarfélagsins. Starfsfólk áhaldahúss sinna ýmsum viðhalds- og rekstrarverkefnum sem og ýmsum smærri framkvæmdum í sveitarfélaginu.

Verkefni sem starfsmenn áhaldahúss sinna eru mörg, fjölbreytt og mörg hver árstíðabundin. Mörg verkefni snúa að því að fegra sveitarfélagið og annast viðhald, viðgerðir og eftirlit á ýmsu er tilheyrir gatnakerfinu, göngustígum, opnum svæðum og leikvöllum.

Nokkur dæmi um verkþætti:

  • Snjómokstur og hálkuvarnir
  • Almenn hreinsun
  • Viðhald og umhirða á gróðurbeðum
  • Grassláttur
  • Þökulagnir
  • Umhirða á gróðri
  • Hellulagnir
  • Viðhald og nýsmíði á timburverki
  • Jólaskreytingar
  • Ýmis þjónusta við stofnanir bæjarins
  • Ýmis þjónusta, ráðleggingar og ráðgjöf til íbúa bæjarins
  • Gjaldtaka og eftirlit Bjarnhóla
  • Gámasvæði á Sólbakka

Umsókn að urðunarsvæðinu á Bjarnhólum

Senda skal tölvupóst á bjarnholar@borgarbyggd.is og sækja um aðgengi að svæðinu til að losa efni til urðunar. Koma þarf fram fullt nafn, kennitala, heimilisfang, hvaða efni, magn efnis í rúmmetrum.

Gjaldskrá vegna úrgangs sem verktakar hafa gert samning við Borgarbyggð um að farga megi á urðunarstaðnum við Bjarnhóla skal vera með eftirfarandi hætti, virðisaukaskattur innifalinn.
Gjaldskrá vegna þessa liðar skal taka breytingum í takt við byggingarvísitölu um hver áramót.
Neðangreind verð miða við grunnvísitölu í desember 2023:
Timbur (ómengað og hæft í kurlun): 1.720 kr. per m³
Garðaúrgangur: 720 kr. per m3
Jarðvegur: 720 kr. per m3
Grjót og múrbrot: 2.225 kr. per m3
Hrossatað: 1.280 kr. per m3
Ekki verður heimilt að meðhöndla annan úrgang en að ofan greinir á þessum urðunarstað.
Urðunarstaðurinn er afgirtur, læstur og undir eftirliti.

Umsókn um stöðuleyfi á gámasvæði á Sólbakka þarf að fara í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins Innskráning | Borgarbyggð (ibuagatt.is) Leigutakar skulu eiga lögheimili í Borgarbyggð, eiga fasteign í Borgarbyggð eða vera með atvinnustarfsemi í Borgabyggð.

Gámar á gámasvæðinu skulu vera snyrtilegir og málaðir. Óheimilt er að geyma hluti ofan á gámum sem eru á svæðinu.  Heimilt er að synja um geymslu gáma sem ekki uppfylla kröfur skv. þessari grein.

Svæðið er læst en hægt að fá lykil, taka þarf fram í umsókn hvort óskað er eftir lykli. Leigutaki skal leggja fram með staðgreiðslu 12.600,- króna tryggingu við afhendingu lykils af svæðinu. Tryggingin endurgreiðist við skil á lykli við lok leigutíma.