Laust starf – starfsmaður í áhaldahús Borgarbyggðar

mars 18, 2016
Borgarbyggð óskar eftir að ráða starfsmann í áhaldahús Borgarbyggðar.
Starfið felst í vinnu undir stjórn verkstjóra áhaldahússins við ýmsar verklegar framkvæmdir og umhirðuverkefni á vegum áhaldahúss, s.s. við gatnakerfi, opin svæði og veitur.
Menntunar og hæfniskröfur eru vinnuvélaréttindi, iðnmenntun sem nýtist í starfi er æskileg svo og reynsla af sambærilegum störfum. Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum eru mikilvæg svo og sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Launakjör skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars 2016. Upplýsingar um starfið veita Guðrún S. Hilmisdóttir í síma 433 7100 og Ámundi Sigurðsson verkstjóri í síma 892 5678. . Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið gudrunh@borgarbyggd.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitarfélagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.
 
 

Share: