Gullna hliðið í Lyngbrekku

mars 4, 2010
Kerlingin og Lykla-Pétur mynd_OHR
Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars nk. kl. 20:30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.
Meira en 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan sess meðal sígildra íslenskra leikrita. Næstu sýningar verða sunnudaginn 7. mars, fimmtudaginn 11. mars, föstudaginn 12. mars og laugardaginn 13. mars. Allar sýningar hefjast kl. 20:30. Miðapantanir eru í síma 848 9043.
Í Gullna hliðinu fylgjast áhorfendur með kerlingu sem leggur á sig mikið ferðalag og ómælt erfiði til að reyna að tryggja að sálin af Jóni eiginmanni hennar komist í Himnaríkisvistina fyrir innan Gullna hliðið. Á því ferðalagi verða margir misjafnlega kynlegir kvistir á leið hennar og sálin af eiginmanninum fylgir alltaf með í skjóðu kerlingar.
Kerlingin er með stærstu hlutverkum í íslenskum leikritum, en hún er inni á sviðinu frá upphafi og allt til enda. Það er Rebekka Atladóttir sem er í hlutverki hennar. Með hlutverk Jóns heitins fer Jónas Þorkelsson. Þröstur Reynisson leikur óvininn. Alls fara 24 leikarar með hin ýmsu hlutverk og eru margir í fleiri en einu hlutverki.
Leikdeild Skallagríms hélt fyrsta samlestur á verkinu í desember en æfingar fóru á fulla ferð í byrjun febrúar. Vaxandi gróska og áhugi hefur verið á starfi leikdeildarinnar undanfarin ár og er þetta annað árið í röð sem sett er upp leikrit. Í fyrra var það gamanleikurinn Á svið og árið 2007 var það Sex í sveit sem deildin setti upp. Rúnar Guðbrandsson leikstýrði einnig báðum þessum leikritum og þetta er þriðja leikritið sem deildin setur upp í Lyngbrekku.
Gullna hliðið kom fyrst út á prenti snemma hausts árið 1941 og var frumsýnt sama ár í Iðnó á annan í jólum. Sýningar Leikfélags Reykjavíkur urðu alls 66 og þótti slík aðsókn tíðindum sæta á þeim tíma. Hefur leikritið síðan margoft verið sett upp hérlendis og erlendis og oft og tíðum fengið frábæra aðsókn.
Þó Gullna hliðið sé þekktasta leikrit Davíðs Stefánssonar er hann þó e.t.v. þekktari fyrir kvæði sín sem lifað hafa með þjóðinni í hartnær heila öld. Lög hafa verið gerð við mörg þeirra og nægir þar að nefna Capri Katarínu eftir Jón frá Hvanná, Ég leiddi þig í lundinn eftir Pál Ísólfsson, Til eru fræ, Kvæðið um fuglana og Hamraborgina.
Nánari upplýsingar veitir formaður leikdeildar: Jónas Þorkelsson s. 863 6539
 

Share: