Heimferð fyrr og árshátíð frestað

febrúar 25, 2015
Vegna veðurs fara nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum og Varmalandifyrr heim í dag, 25. febrúar. Brottför frá skóla er kl. 12.15.
Kennt verður á Hvanneyri skv. stundaskrá en foreldrar ákveða hvort þeir sækja börnin eða ekki.
Árshátíð unglingadeildar á Kleppjárnsreykjum sem vera átti í Logalandi í kvöld er einnig frestað vegna veðursins.
 

Share: