Myndamorgunn föstudaginn 14. nóv. á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar
Guðsþjónusta í Borgarneskirkju
Guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl 18:00
Séra Úrsula Árnadóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn leiðir sálmasöng, stjórnandi Jónína Erna Arnardóttir.
Öll hjartanlega velkomin
Staðalímyndir og kynþáttafordómar, Morgunkaffi á Teams
Hvernig mótum við skoðanir okkar á Hinum? Hver hefur vald til þess að skapa þekkingu? Hvers vegna lifa ákveðnar staðalmyndir áfram þrátt fyrir að þær séu skaðlegar? Hvað eru kynþáttafordómar?
Í þessari fræðslu skoðum við birtingarmyndir og áhrif staðalmynda og kynþáttafordóma í nútímanum, og hvernig þessir þættir viðhalda og endurskapa valdakerfi.
Fyrirlesari er Jovana Pavlovic mannfræðingur og fjölmenningarfulltrúi Símenntunar á Vesturlandi.
Skráning fer fram á jovana@simenntun.is eða í síma 437-2394
20. nóvember 2025. kl.09:00—10:10
Sýningaropnun – Útverðir
Opnun sýningarinnar Útverðir eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur, í Safnahúsi Borgarfjarðar, Borgarnesi, þann 8. nóvember milli 15 og 17.
Spilastund fyrir fjölskylduna
Spilastund fyrir fjölskylduna með Spilavinum.
Jólabingó Kvenfélags Álftaneshrepps
Jólabingó Kvenfélags Álftaneshrepps haldið 12. desember 2025 klukkan 20:00 í Lyngbrekku
Jólatónleikar Hljómlistafélags Borgarfjarðar
Jólatónleikar Hljómlistafélags Borgarfjarðar ✨ 7. Desember 2025, haldnir verða tvennir tónleikar í Hjálmakletti, Kl.15:00 og kl.20:00. Forsala aðgöngumiða í Brúartorgi, Brúartorgi 4 Borgarnesi.
Er þetta ofbeldi eða leikur? Fyrirlestrakvöldi hjá Foreldrafélagi GBF.
Að þessu sinni er umræðuefnið er þetta ofbeldi eða leikur?
Viðburðurinn fer fram í Ársal á 3 hæð í Landbúnaðarháskóla Íslands. Jafnframt verður hann sendur út á teams og kemur hlekkur hér inn fyrir viðburðinn.
Það eru allir velkomnir og við hvetjum sem flesta til að mæta og láta sig þetta málefni varða.
Fyrirlesarar okkar eru:
Jón Arnar Sigþórsson hjá Samfélagslögreglunni
https://island.is/s/logreglan/samfelagsloggaesla
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarsambands Íslands. Hann hefur verið starfandi í skólamálum samfellt frá árinu 1994, fyrst sem kennari og svo skólastjórnandi og hefur á þeim tíma komið að málefnum eins og þeim sem rædd verða á viðburðinum.
https://www.ki.is/um-ki/
Soffía Elín Sigurðardóttir. Sjálfstætt starfandi sálfræðingur hjá Sentia Sálfræðistofu og Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð. Hún hefur á annan áratug sérhæft sig í sálfræðimeðferð barna og ungmenna. Stofnaði hún og starfrækir Nexus Noobs námskeiðin o.m.fl.
https://www.sentia.is/soffia
Jólabingó Kvenfélagsins 19. júní
Árlegt jólabingó Kvenfélagsins 19. júní verður haldið fimmtudaginn 20. nóvember kl. 19:30 í aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Krakkakirkja 🎃
Nú er hrekkjavakan á næsta leiti – og víst að þessi hátíð vekur upp hjá okkur allskonar tilfinningar!
Í krakkakirkjunni ætlum við að tala um óttann!
Minna okkur á að það er ekkert að óttast – þó tilfinningarnar okkar séu allskonar og stundum alveg í flækju!
Við ætlum að tala um hvað við óttumst
Hvað við getum gert þegar við erum hrædd
Við ætlum að syngja, dansa, lesa sögur og spjalla – um óttann og allar hinar tilfinningarnar! Við ætlum líka að fá okkur eitthvað að maula og njóta samverunnar
Börn á öllum aldri eru velkomin með fullorðna fólkinu sínu!
Velkomið að koma í búning!
Velkomið að koma með bangsa sem við getum knúsað ef við verðum hrædd 😃
Við hlökkum til að sjá ykkur í krakkakirkjunni!
Sunnudaginn 2. nóvember kl 16:00!








