KK í Reykholti

nextjs

Tónleikar með KK í Reykholtskirkju og hótelgisting 23. maí

Kyrrðin í Reykholti fær nýjan hljóm þegar KK stígur á svið í hinni sögufrægu Reykholtskirkju. Í þessu fallega og kyrrláta umhverfi fær tónlistin að njóta sín til fulls og skapa notalega stemningu í hjarta Borgarfjarðar.

Innifalið í tilboðinu:
Gisting í eina nótt á Fosshótel Reykholti
Morgunverðarhlaðborð
Aðgöngumiðar á tónleika KK í Reykholtskirkju, 23. maí kl. 21:00

Verð:
Standard herbergi fyrir 2: 39.800 kr.
Standard herbergi fyrir 1: 31.700 kr.
Superior herbergi fyrir 2: 44.800 kr
Superior herbergi fyrir 1: 36.700 kr
Standard einstaklingsherbergi: 29.400 kr

Bættu við aukanótt:
Standard fyrir 2: 25.600 kr
Standard fyrir 1: 22.300 kr
Superior fyrir 2: 30.600 kr
Superior fyrir 1: 27.300 kr

Til þess að bóka aukanótt: Sendið póst á reykholt@fosshotel.is með bókunarnúmeri

Við mælum með að kíkja á Happy hour frá 16:00-18:00 og fá sér eitthvað gott að borða áður en haldið er á tónleikana. Hægt er að bóka borð hér, https://noona.is/fosshotelreykholt

Brákarhátíð 2026

nextjs

Brákarhátíð í Borgarnesi, dagana 25-27.júní. Viðburðir verða staðsettir víða um Borgarnes á þessum dögum.

Kammerkórinn Huldur syngur í Borgarneskirkju

nextjs

Kammerkórinn Huldur syngur í Borgarneskirkju í tilefni af útgáfu fyrstu hljómplötu kórsins sem ber nafnið ‘Í fossgljúfri’.
Sungin verður dagskrá stútfull af nýrri íslenskri kórtónlist. Hlökkum til að sjá ykkur!

Huldur syngur í Borgarneskirkju

nextjs

Kammerkórinn Huldur flytur nýja íslenska kórtónlist í Borgarneskirkju af tilefni útgáfu fyrstu hljómplötu sinnar ‘Í fossgljúfri’

Íþróttir, heilsuefling og lýðheilsa – opinn íbúafundur með framboðum

nextjs

Opinn íbúafundur um málefni íþróttastarfs, heilsueflingar og almennrar lýðheilsu í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verður haldinn í grunnskólanum í Borgarnesi þriðjudaginn 5. maí kl 20:00. Öll framboð til sveitarstjórnar í þessu sameinaða sveitarfélagi hafa boðað komu sína og mun forystufólk þeirra taka þátt í pallborðsumræðum um þessi mál.
Ef þú hefur áhuga á íþróttastarfi barna og fullorðinna á svæðinu, hefur skoðun á opnunartímum sundlauga, lagningu göngustíga, umhirðu útivistarsvæða í eigu sveitarfélaganna tveggja, sem nú eru að sameinast, eða einhverju öðru sem tengist yfirskrift fundarins hvetjum við þig eindregið til að mæta og taka þátt í samtalinu.

Elvis messa á sumardaginn fyrsta

nextjs

Haldið þið að það verði ekki huggulegt að koma í kirkjuna á sumardaginn fyrsta kl 18:00 ❤ ❤
Hlusta á þekkta slagara og ljúflingslög sem Elvis Presley gerði fræg! Kirkjukórinn okkar er búinn að vera að æfa þetta skemmtilega prógramm undir stjórn Jónínu Ernu og ég hlakka til að hlusta!
Kannski segir presturinn eitthvað gáfulegt, það er ekki víst samt – en það verður lesið úr ritningunni, farið með bænir.. og mikilvægast af öllu, við fáum að koma saman í einlægni og mildi, og óska hvert öðru gleðilegs sumars!
Við sjáumst vonandi í kirkjunni okkar á fimmtudaginn kl 18:00

Afmælishátíð Freyjukórsins

anna

Freyjukórinn í Borgarfirði heldur uppá 35 ára starfsafmæli sitt í Logalandi síðasta vetrardag 22. apríl kl. 20.00 aðgangseyrir 4000.- söngur, grín, myndir úr starfi kórsins og léttar veitingar. Allir velkomnir sérstaklega þó fyrri kórfélagar.