Efra-Nes – Nýtt deiliskipulag

viktor1

Í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst vinnslutillaga að nýju deiliskipulagi í Efra-Nesi í Borgarbyggð.

Efra-Nes

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10.03.2026 að auglýsa vinnslutillögu nýs deiliskipulags verslunar- og þjónustusvæðis í Efra-Nesi í Borgarbyggð.

Vinnslutillagan tekur til tekur til 85.998 m2 landspildu úr landi Efra-Ness í Borgarbyggð. Landeigandi hyggst þróa ferðaþjónustu á svæðinu með áformum um 50 hvelfd gistitjöld og tvö stærri þjónustutjöld. Tillagan samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Aðkoma að svæðinu er um Kaðalstaðaveg (tengivegur af þjóðvegi 50). Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037.

· Skipulagslýsing er aðgengileg í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 198/2026) frá 13.03.26 til og með 30.03.26 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við vinnslutillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa.
Ef óskað er nánari kynningu á vinnslutillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 13. mars, 2026.