Efra-Nes – Nýtt deiliskipulag

viktor1

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að nýju deiliskipulagi í landi Efra-Ness í Borgarbyggð.

Efra-Nes

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar samþykkti þann 16.02.2026 að auglýsa lýsingu að nýju deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustusvæði í landi Efra-Ness í Borgarbyggð.

Lýsingin tekur til um 8,6 ha landspildu innan jarðarinnar Efra-Nes sem er um 190,3 ha. Fyrirhugað er að reisa allt að 60 hvelfd gistitjöld ásamt tveimur stærri þjónustutjöldum. Hvert gistitjald verður að hámarki 40 m² og að hámarki 4,5 m frá gólfi. Hvert tjald verður reist á steyptri plötu. Annað þjónustutjaldið verður 300 m² að stærð og 10 m hátt og hitt þjónustutjaldið verður um 700 m² og 15 m hátt. Aðkoma að svæðinu er af Kaðalstaðavegi (tengivegur að þjóðvegi 50) um núverandi aðkomuveg að bæjarhlaði Efra-Ness. Lýsingin samræmist endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037.

· Skipulagslýsing er aðgengileg í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 198/2026) frá 16.02.2026 til og með 02.03.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 16. febrúar, 2026.