Þann 15. janúar var opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna. Ráðherra velferðarmála veitir styrkina, sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991, en umsjón með styrkveitingum hefur ráðgjafi Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki. Sjá auglýsingu hér Konur sem hafa góðar viðskiptahugmyndir eða reka fyrirtæki og eru að þróa nýjar vörur eða þjónustu, geta sótt um styrki sem geta numið allt …
Hljóðupptaka á fundum sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að taka upp fundi sveitarstjórnar og hafa upptökurnar aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar. Þetta var gert í fyrsta sinn á 71. fundi sveitarstjórnarinnar sem haldinn var 13. janúar. Hljóðupptakan er aðgengileg á sama stað og skrifaða útgáfa fundargerðar fundarins og er hægt að smella hér til að sjá fundargerðina. Byrjunin á þessu gekk þó ekki alveg hnökralaust …
Ugluklettur auglýsir eftir leikskólakennara
Leikur – Virðing – Gleði Við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi eru lausar stöður leikskólakennara frá og með 1. febrúar næstkomandi. Um er að ræða tvær hlutastöður. Leikskólinn Ugluklettur er þriggja deilda leikskóli. Þar eru að jafnaði 65 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára. Unnið er með Flæði samkvæmt kenningum Mihaly Csikszentmihalyisem ramma utanum skólastarfið. Nánari upplýsingar eru …
Sorphirðudagatal 2011
Íslenska gámafélagið og Borgarbyggð hafa gefið út sorphirðudagatal fyrir árið 2011. Dagatalinu verður dreift í öll hús í Borgarbyggð á næstu dögum. Sorphiðudagatalið má einnig nálgast hér.
Nýjar reglur um umferð í Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt nýjar reglur um umferð í sveitarfélaginu skv. heimild í 3. mgr. 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Samkvæmt reglunum er leyfilegur hámarkshraði í íbúðargötum í Borgarbyggð nú 30 km/klst. Undantekning er hámarkshraði um Borgarbraut, frá gatnamótum við Egilsgötu og út Borgarbraut til norðurs þar sem áfram verður hámarkshraði 50 km/klst. Hámarkshraðinn 30 km/klst gildir í Borgarnesi, á …
Íþróttamiðstöðvar í Borgarbyggð
Starfsemi í íþróttamiðstöðvum Borgarbyggðar er að komast í fullan gang nú eftir áramótin. Í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi er boðið upp á ýmiss námskeið, m.a. spinning, morguntrimm og leikfimi fyrir konur. Tilkynningu frá leiðbeinendum má nálgast hér. Á Kleppjárnsreykjum er íþróttamiðstöðin opin virka daga frá 8.30 – 16.00 nema á föstudögum, þá er lokað kl. 15.00. Einnig er opið á þriðju- …
Starf forstöðumanns íþróttamannvirkja
Sveitarfélagið Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns íþróttamannvirkja hjá sveitarfélaginu. Meginhlutverk forstöðumanns íþróttamannvirkja er að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri íþróttamannvirkja í Borgarbyggð. Hæfniskröfur; – Þjónustulund, áhugi og metnaður – Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg – Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði er nauðsynlegt – Hæfni í mannlegum samskiptum – Menntun sem nýtist í starfi Launakjör …
Næstu sorphirðudagar
Næstu sorphirðudagar í Borgarbyggð verða: Borgarnes, almennt sorp: 6. janúar Borgarnes, græn tunna: 11. janúar Aðrir þéttbýlisstaðir, almennt sorp: 10. janúar Aðrir þéttbýlisstaðir, græn tunna: 12. janúar Íbúum er bent á að fara með jólatré sín á gámastöð eða gámavelli í sveitarfélaginu en sveitarfélagið stendur ekki lengur fyrir sérstakri söfnun/förgun jólatrjáa. Gámastöðin við Sólbakka í Borgarnesi er opin mánudaga til …
Þrettándagleði frestað
Fyrirhugaðri Þrettándagleði Bogarbyggðar, brennu, flugeldasýningu og tilheyrandi skemmtun sem halda átti á Seleyri í dag, fimmtudaginn 6. janúar hefur verið frestað þar sem veðurútlit er slæmt. Þrettándagleðin fer því fram sunnudaginn 9. janúar og hefst stundvíslega kl. 17.17. Það er björgunarsveitin Brák sem á veg og vanda af skipulagningu og allri framkvæmd gleðinnar.
Sýning um sr. Magnús Andrésson
Undirbúningur vegna sýningar um sr. Magnús Andrésson á Gilsbakka (1845-1922) stendur nú yfir í Safnahúsi. Sr. Magnús gegndi mörgum merkum hlutverkum í héraði á sínum tíma og fyrir utan prestsstörfin má nefna að hann var alþingismaður Mýramanna, virtur kennari og homopati sem leitað var til víða að af landinu. Um undirbúning sýningarinnar og skemmtilega frásögn af bréfi Eggerts Eiríkssonar frá …