Haustfrétt frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Tónlistarskóli Borgarfjarðar fagnar 50 ára afmæli um þessar mundir. Skólinn var stofnaður 7. september 1967 af Tónlistarfélagi Borgarfjarðar. Theodóra Þorsteinsdóttir hefur verið skólastjóri frá 1991 og starfa níu kennarar við skólann og 162 nemendur  stunda tónlistarnám á haustönn. Starf skólans fer fram í húsnæði skólans að Borgarbraut 23 Borgarnesi, en einnig er kennt á starfstöðvum Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum …

AÐ VERA FORELDRI – UPPELDISFRÆÐSLA Í LEIKSKÓLANUM

Að vera foreldri er eitt mikilvægasta og mest krefjandi verkefni fullorðinsáranna. Foreldrahlutverkið hefst strax við fæðingu barnsins og felur í sér að annast það, vernda, kenna og veita því leiðsögn. Markmið góðs uppeldis er að barnið verði heilbrigt, vel aðlagað, hamingjusamt og hafi til að bera eiginleika og færni sem kemur því til góða í framtíðinni. Nauðsynleg uppeldisfærni er hins …

Þræðir úr sögu Borgarness

Degi íslenskrar tungu verður fagnað í Safnahúsi Borgarfjarðar á morgun með fyrirlestri Heiðars Lind Hanssonar, þar sem hann fjallar um efni úr sögu Borgarness. Eins og kunnugt er gaf Borgarbyggð sögu Borgarness út í vor í tilefni af 150 ára afmæli staðarins og hafði það verkefni verið í nokkur ár í undirbúningi. Formaður ritnefndar var Birna G. Konráðsdóttir. Var Egill …

Fuglafriðland í Andakíl – fyrirlestur

Fuglafræðingarnir Rachel Stroud og Niall Tierney hafa dvalið á Hvanneyri síðan í mars við talningar og rannsóknir á fuglum í friðlandinu Andakíll. Þau hafa unnið gríðarmikið starf í sjálfboðavinnu og eru rannsóknir þeirra framlag til friðlandsins ómetanlegar.  Nú fer að styttast í dvöl þeirra hérlendis – þau yfirgefa landið líkt og farfuglarnir okkar. Kynning á fjölbreyttu fuglalífi Andakíls verður haldinn miðvikudaginn 15. …

Trjágróður út fyrir lóðarmörk við gangstéttir og göngustíga.

Borgarbyggð hvetur garðeigendur til að klippa tré og runna sem fara út fyrir lóðarmörk við gangstéttir og göngustíga svo þau hvorki hindri umferð gangandi,  hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu.  Einnig þarf að huga að aðgengi véla vegna vélsópunar og snjóhreinsunar á gönguleiðum.  

Vetrarþjónusta 2017 – 2018

Snjómokstursplan fyrir Borgarnes ásamt viðmiðunarreglum um snjómokstur í dreifbýli í Borgarbyggð fyrir veturinn er komið inn á heimasíðuna undir „https://borgarbyggd.is/thjonusta/umhverfis-og-skipulagssvid/snjomokstur/ „. Þessi skjöl má einnig sjá hérna. Snjómokstur2017_avef U22.002_Snjómokstursplan

Bekkjarsáttmálar í Grunnskólanum í Borgarnesi

Uppbyggingarstefnan eða uppeldi til ábyrgðar er höfð að leiðarljósi í öllu starfi Grunnskólans í Borgarnesi. Um  er að ræða aðferð til að efla jákvæð samskipti. Aðferðin byggir á því að ná samstöðu um lífsgildi til að hafa að leiðarljósi og að fylgja þeim síðan eftir með fáum en skýrum reglum. Hún miðar að því að kenna börnum og unglingum sjálfstjórn …

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar – fyrri umræða.

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar var lögð fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar þann 9. nóvember sl. Fjárhagsáætlunin byggir á þeim trausta grunni sem hefur verið lagður með margvíslegum rekstrarlegum á síðustu árum. Með þeirri fjárhagsáætlun fyrir Borgarbyggð sem lögð er fram til fyrri umræðu er haldið áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið eða að auka stöðugleika í fjármálum sveitarfélagsins, …

Leikskóli frá því að fæðingarorlofi lýkur

Faglegt leikskólastarf er sá kostur sem þykir eftirsóknarverðastur fyrir börn og foreldra eftir að fæðingarorlofi lýkur. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum 18. maí sl. að þróa leikskólastarf í Borgarbyggð á þann veg að allt að 9 mánaða ungum börnum bjóðist leikskóladvöl að loknu fæðingarorlofi. Þetta fyrirkomulag stendur yfir frá hausti 2017 í 12 mánuði til reynslu. Var fjallað um málið …

Samstarf Öldunnar og Klettaborgar

Leikskólinn Klettaborg og Aldan – verndaður vinnustaður, hafa tekið höndum saman um að styðja við átakið Burðarplastpokalaus Borgarbyggð. Samstarfið felst í að Aldan saumaði 70 taupoka sem verða nýttir undir föt sem óhreinkast í leikskólanum og taka þarf með heim. Foreldrar og börn þurfa svo að skila pokunum aftur til baka í leikskólann eftir notkun og minnka þannig notkun á …