Vetrarstarf Tónlistarskóla Borgarfjarðar er hafið. Fyrsti kennsludagur er í dag fimmtudag eins og hjá grunnskólunum. Starfið verður fjölbreytt að vanda og í vetur verður boðið upp á nýjungar, en bætt verður við söngleikjadeild fyrir börn og samsöngsdeild fyrir fullorðna. Einnig verða breytingar á starfsfólki, Jónína Erna Arnardóttir, sem starfað hefur við skólann yfir tuttugu ár hverfur til annarra starfa og …
Námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum
Það sem þú þarft að vita sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum kjörtímabilið 2018-2022 Föstudaginn 7. september í Hjálmakletti, Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarnesi Dagskrá: 10:00 Inngangur Stjórnandi námskeiðsins, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, ráðgjafi hjá Ráðrík og fyrrv. sveitarstjóri. 10:15 Til hvers er ég kjörinn í sveitarstjórn? Um hlutverk sveitarstjórnarmanna og möguleika þeirra til að móta það. Eyrún …
Lokun ráðhúss.
Vegna ferðar starfsmanna ráðhússins verður skrifstofa Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, lokuð frá kl. 12 föstudaginn 24. ágúst.
Fræsing Borgarbrautar
Í dag, þriðjudaginn 21. ágúst, er stefnt á að fræsa báðar akreinar á Borgarbraut, frá Böðvarsgötu að Þórðargötu. Þrengt verður á annarri akreininni í einu, viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur skv. viðlögðu lokunarplani Borgarnes(fræs). Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 13:00 til kl. 19:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og …
174. fundur sveitarstjórnar – fundarboð
FUNDARBOÐ FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 23. ágúst 2018 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 5.7. (173) Fundargerðir byggðarráðs 19.7. 2.8. 20.8. (457, 458, 459) Fundargerð velferðarnefndar 6.7. (84) Fundargerð fræðslunefndar 20.8. (171) Fundargerðir afréttarnefndar Álftaneshrepps 23.7, 16.8. (28, 29) Fundargerðir fjallskilanefndar BSN 30.7., …
Húsnæði til leigu
Byggðarráð hefur samþykkt að falla frá því, tímabundið, að láta fjarlægja/rífa húsið að Gunnlaugsgötu 21b. Því er það auglýst til leigu frá 1. sept. n.k. til 1. maí 2019. Tekið skal fram að húsið stendur á lóð Grunnskólans í Borgarnesi og því er takmarkaður akstur að því. Umsóknarfrestur er til og með 30.ágúst 2018. Áhugasömum er bent á að hafa …
Teymiskennsla og betri bekkjarbragur í skólum Borgarbyggðar
Stjórnendur, kennarar og annað starfsfólk grunnskóla Borgarbyggðar hafa nýtt endurmenntunar- og starfsdaga vel í upphafi skólaársins 2018-2019. Margir þeirra sótti ráðstefnu á vegum Samtaka áhugafólks um skólaþróun um teymiskennslu undir yfirskriftinni „Ber er hver að baki …“ í Ingunnarskóla í Reykjavík þann 14. ágúst sl. Vinnustofunni stýrði dr. Andrea Honigsfeld en hún hefur skrifað fjórar bækur um teymiskennslu. Þann 15. …
Skólasetning grunnskóla Borgarbyggðar
Grunnskóli Borgarfjarðar verður settur 22. ágúst 2018 í hverri deild fyrir sig sem hér segir. Hvanneyri kl 10:00, Kleppjárnsreykjum kl 12:00, Varmalandi kl 14:00. Eftir skólasetningu verður kynning á námsefni vetrarins inn í stofu hjá umsjónakennurum. Grunnskólinn í Borgarnesi verður settur í Borgarneskirkju miðvikudaginn 22. ágúst. Nemendur á yngsta stigi (1. – 4. bekkur) mæta kl. 10.00, nemendur á miðstigi …
Tilkynning frá meirihluta sveitarstjórnar
Í ljósi fréttflutnings varðandi málefni aðila að Borgarbraut 55 sendir meirihluti sveitastjórnar Borgarbyggðar frá sér eftirfarandi tilkynningu. Það er vilji meirihluta sveitastjórnar að ná samkomulagi við lóðarhafa á Borgarbraut 55 í þeirri stöðu sem nú er uppi. Í ljósi hennar ákvað meirihluti sveitastjórnar Borgarbyggðar að fá lögfræðilegt álit til að geta tekið faglega og upplýsta afstöðu í áframhaldandi samningaviðræðum. Í …
Sumarlestri lokið
Sumarlestri Héraðsbókasafns Borgarfjarðar lauk fyrir stuttu og var þátttaka afar góð auk þess sem börnin lásu meira hvert fyrir sig en verið hefur. Er þetta ánægjuleg þróun. Á næstunni verður uppskeruhátíð í Safnahúsi fyrir þessa duglegu lestarhesta þar sem þau fá viðurkenningar fyrir góða frammistöðu. Sumarlesturinn stóð yfir frá 10. júní – 10. ágúst, en hann er fyrir börn á …








