Innilaugin í sundlauginni í Borgarnesi er lokuð vegna viðhalds. Hún opnar aftur miðvikudaginn 20. janúar.
Jólahús og jólagata Borgarbyggðar 2025
Jólahús Borgarbyggðar 2025 er Garðavík 9 í Borgarnesi. Það er niðurstaða jólaleiks sem stóð yfir á heimasíðu Borgarbyggðar í desember. Þar búa hjónin Dóra Gísladóttir og Jakob Guðmundsson, en húsið þeirra, gluggar og garðurinn er fagurlega skreytt af miklum metnaði. Sjón er sögu ríkari og sannarlega þess virði að líta á húsið og garðinn í Garðavík. Við óskum þeim innilega til hamingju …
Viljayfirlýsing við Festi um uppbyggingu í Brákarey
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing milli Festis ehf. og Borgarbyggðar sem hefur það að markmiði að gera samkomulag um uppbyggingu í Brákarey. Vinna við nýtt deiliskipulag fyrir Brákarey er langt komin og áætlað að það verði auglýst eigi síðar en í mars. Það skipulag byggir á hugmynda- og skipulagsvinnu sem Festir kynnti fyrir Borgarbyggð og íbúum sumarið 2024 og hefur það …
Borgarbyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar þriðja árið í röð
Borgarbyggð hlaut í gær viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA við hátíðlega athöfn, en þetta er þriðja árið í röð sem sveitarfélagið hlýtur þessa viðurkenningu. Í ár voru 90 fyrirtæki, 16 sveitarfélög og 22 opinberir aðilar sem hlutu viðurkenninguna en en Jafnvægisvogin hefur þann tilgang að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Viðurkenninguna hljóta …
Rafræn endurvinnslukort fyrir Gámastöðina í Sólbakka
Allir fasteignaeigendur í Borgarbyggð sem greiða gjald vegna reksturs gámasvæðis geta sótt rafræn endurvinnslukort fyrir Gámastöðina í SólbakkaKortið virkar þannig að þegar komið er inn á gámasvæðið er kortið skannað, starfsmaður á gámasvæðinu tekur út af kortinu í samræmi við það magn af gjaldskyldum úrgangi sem verið er að losa sig við. Starfsmaður gámasvæðis metur magn og tekur út af …
264. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar
264. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar verður haldinn í Hjálmakletti, fimmtudaginn 8. maí 2025 og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: Sveitarstjórn Borgarbyggðar 264 Hægt er að fylgjast með fundinum í streymi hér.
Kristbjörg Ragney sigraði söngkeppni Samvest
Fimmtudaginn 6. mars var Söngkeppni Samvest haldin í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Keppnin er undankeppni félagsmiðstöðva á Vesturlandi fyrir Söngkeppni Samfés. Þær Erla Ýr Pétursdóttir og Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir sigruðu Söngkeppni Óðals og kepptu því fyrir hönd Óðals en tæplega 40 unglingar frá Óðali fóru með til Ólafsvíkur til að hvetja þær áfram. Kristbjörg Ragney sigraði keppnina og verður því …
Stafrænt deiliskipulag
Frá árinu 2020 hafa skipulagshönnuðir/skipulagsráðgjafar þurft að vinna svæðis- og aðalskipulagsgögn á stafrænu formi auk hefðbundinna skipulagsgagna. Einnig er verið gerð krafa um að deiliskipulagsgögn verði unnin á stafrænu formi sbr. 46. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tók það gildi frá og með 1. janúar 2025. Það felur m.a. í sér að vinna þarf skipulagsgögn í landupplýsingakerfi með samræmdum …
Stofnanir lokaðar á morgun 6. febrúar vegna ofsaveðurs
Á morgun, 6. febrúar verða allar skólastofnanir, þar á meðal Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Borgarfjarðar, Hnoðraból, Hraunborg, Andabær, Klettaborg og Ugluklettur, lokaðar. Listaskólinn verður einnig lokaður. Aldan verður lokuð, en Búsetan verður opin, rétt er að benda á að líklega verði skert þjónusta. Safnahús Borgarfjarðar mun svo opna 13:00 þann 6. febrúar. Tómstundir: Að svo stöddu verður frístund lokuð en …









