Húsnæði

Starfsfólk hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar veita einstaklingum og fjölskyldum ráðgjöf og alhliða upplýsingar um húsnæðismál og húsaleigusamninga. Umsýsla á félagslegu húsnæði, úthlutun leiguíbúða í eigu bæjarins og greiðsla sérstaka húsnæðisbóta fer í gegnum fjölskyldusvið Borgarbyggðar.

Vakin er athygli á því að umsóknir um almennar húsaleigubætur eða húsnæðisbætur fara fram hjá Greiðslustofu húsnæðisbóta, sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

Húsnæðisbætur

Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur ætlaðar til þess að aðstoða fólk sem leigir íbúðarhúsnæði. Húsnæðið getur verið á almennum leigumarkaði, félagslegt leiguhúsnæði, á námsgörðum eða áfangaheimili. Ákveðin skilyrði þarf að uppfylla til að fá húsnæðisbætur.
Húsnæðisbætur tóku við af eldra bótakerfi sem var kallað húsaleigubætur.
Sótt er um húsnæðisbætur á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Nánari upplýsingar og aðstoð má nálgast í þjónustuveri Borgarbyggðar í síma 433-7100

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Með nýrri lagasetningu um húsnæðisbætur kallast nú sérstakar húsaleigubætur, sérstakur húsnæðisstuðningur. Sérstakur húsnæðisstuðningur verður áfram greiddur frá sveitarfélögum en vakin er athygli á því að umsækjendur verða að hafa sótt um húsnæðisbætur fyrst hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sérstakar húsnæðisbætur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu vegna samþykktra íbúða á almennum markaði til viðbótar við almennar húsnæðisbætur. Aðstæður umsækjanda eru metnar út frá tekju- og eignaviðmiðum og félagslegum aðstæðum.

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Félagslegt leiguhúsnæði

Félagslegar leiguíbúðir eru ætlaðar þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt fær um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Með félagslegri leiguíbúð er átt við hverja þá íbúð í eigu Borgarbyggðar sem skilgreind er sem leiguíbúð til félagslegra nota.
Umsókn á félagslegu leiguhúsnæði fer fram á þjónustugátt Borgarbyggðar. 

Reglur og tengt efni