Fjallað er um stöðuleyfi í 2.6. kafla byggingarreglugerðar. Sækja þarf um stöðuleyfi til að láta eftirfarandi lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem eru sérstaklega skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna, þ.m.t. á lóðum:
- Hjólhýsi, á tímabilinu frá 1. okt. – 1. maí.
- Gáma, báta, torgsöluhús, frístundahús í smíðum (ætluð til flutnings) og stór samkomutjöld.
Sótt er um stöðuleyfi í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar.