Gjaldskrá fyrir árið 2025
Frístundastarf í Borgarbyggð
Frístund í Borgarbyggð
Boðið er upp á frístund fyrir börn í 1.-4.bekk í Grunnskóla Borgarnes og Grunnskóla Borgarfjarðar að lokum hefðbundnum skóladegi.
Gjald fyrir þáttöku í frístund er:
Verð pr klukkutíma: 405 krónur.
Síðdegishressing: 164 krónur á dag.
Smiðjur/Námskeið á vegum frístundar: 550 krónur fyrir skiptið.
Systkinaafsláttur:
Ef fleiri en eitt barn eru skráð í frístund, á leikskóla eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið. Ávallt er greitt fullt verð fyrir yngsta barnið. Veittur er 50% afsláttur af dvalargjaldi fyrir barn umfram eitt og 100% afsláttur af dvalargjaldi fyrir hvert barn umfram tvö. Fullt verð er greitt fyrir fæði.
Sumarfjör
Sumarfjör er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4.bekk í Borgarbyggð. Sumarfjör er starfrækt í Borgarnesi en boðið er upp á akstur frá Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum, Baulu, Bifröst og frá Mýrunum.
Gjald fyrir sumarfjör
Vikan kostar 9.250 krónur – námskeið frá 09:00-16:00.
Systkinaafsláttur:
Veittur er 50% afsláttur fyrir eldra systkinið ef þau eru skráð sömu vikuna í Sumarfjör.