Opinn hlaðvarpsþáttur í umsjón Sigrúnar Elíasdóttur sagnfræðings og rithöfundar og Önnu Drafnar Sigurjónsdóttur.
Skáldkonan Auður Haralds var þekktust fyrir kaldhæðnar lýsingar á mönnum og málefnum, sem stundum féllu í grýttan jarðveg samtímans. Ekki síst vegna þess að hún nýtti húmorinn óspart til að gera grín að ýmsum samfélagsmeinum sem sérstaklega snéru að konum.
Hlaðvarpið Myrka Ísland bregður sér í feminískan búning og breytir aðeins um viðfangsefni frá hefðbundnum hörmungum.
Njótum notalegrar stemningar þar sem Sigrún segir Önnu frá verkum og ævi stórmeistarans Auði Haralds í Safnahúsi Borgarfjarðar.
Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins „Læsi á stöðu og baráttu kvenna“ í tilefni af Kvennaári 2025 og er þessi viðburður liður í því og nýtur styrks frá Bókasafnssjóði.
