Föstudaginn, 3. maí næstkomandi verður margverðlaunaði meistarakokkurinn Sindri Guðbrandur Sigurðsson með pop-up á veitingastaðnum Calor á Hótel Varmalandi í Borgarfirði.
Ferill Sindra í keppnismatreiðslu er glæsilegur, hann hreppti 3. sætið á Ólympíuleikunum í matreiðslu með íslenska kokkalandsliðinu, hann hefur unnið titilinn, Besti kokkur Norðurlandanna, varð Kokkur ársins árið 2023 og verður fulltrúi Íslands í Bocuse d’Or frægustu matreiðslukeppni heims á næsta ári sem haldin verður í Lyon í Frakklandi.