Kynning á væntanlegri bók um síðustu hestasveinana e. Stefán Þórarinsson

nextjs

Í Safnahúsi Borgarfjarðar laugardaginn 7. september n.k., milli kl. 11:00 – 12:00, verður Stefán Þórarinsson með kynningu á væntanlegri bók sinni um síðustu hestasveinana á Víghól í Kjarrá.

Meðfylgjandi mynd er tekin við Réttarhyl hjá Víghóli og á  myndinni eru Einar Pétursson, forstjóri Fiskimjölsverksmiðjunnar Kletts í Sundagörðum í Reykjavík og Guðmundur Jónsson, frá Þorgautsstöðum.

Verið hjartanlega velkomin!
Frítt inn á viðburðinn.

Safnahús Borgarfjarðar
Bjarnarbraut 4 – 6, Borgarnesi