„HUGHRIFIN OKKAR“ – sýningaropnun, n.k. laugardag

nextjs

Að þessarri sýningu standa þrjár listakonur, sem allar búa í Borgarbyggð, en það eru þær Snjólaug Guðmundsdóttir, Hulda Biering og Svanheiður Ingimundardóttir.  Þær hafa allar mikla reynslu og fjölbreytta menntun á sviði lista og leita víða fanga í listsköpun sinni.  Áhugi á listum og listsköpun er það sem sameinar þessar konur og bindur þær vináttuböndum.

Sköpun þeirra í list er mjög mismunandi hvað varðar efni og efnistök en hugmyndina að verkefninu, „Hughrifin okkar“, fengu þær fyrir rúmu ári og hafa síðan þá unnið að verkum fyrir sýninguna, sem mun standa frá 17. maí til 7. júní í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar.

VERIÐ ÖLL VELKOMIN!