Glæpastund á Safnahúsi – öllum óhætt

nextjs

Miðvikudaginn 28. maí n.k., kl. 20:00 munu koma til okkar í Safnahúsið tveir góðir gestir og ræða um íslenskar glæpasögur.  Viðburðurinn er í samstarfi við „Hið íslenska glæpafélag“ (félag rithöfunda, þýðenda og fræðafólks um viðgang íslenskra glæpasagna).

Eliza Reid segir okkur frá bókinni sinni „Diplómati deyr“, sem er hennar fyrsta skáldsaga.  Spennandi og líflega skrifuð glæpasaga þar sem hvert leyndarmálið af öðru er afhjúpað.

Ævar Örn Jósepsson, foringi Hins íslenska glæpafélags, rekur sögu íslensku glæpasögunnar og leitar skýringa á þeirri sprengingu sem varð í ritun þeirra, útgáfu og vinsældum skömmu fyrir síðustu aldamót. – Er yfirskrift erindis hans: Íslenskt glæpafár í 25 ár.

Allir velkomnir – og öllum óhætt!